Sameiginlegur reiðtúr hestamannafélaganna
Nú fer að líða að sameiginlega reiðtúr allra æskulýðsnefnda á höfuðborgarsvæðinu en hann er fyrirhugaður þann 20. maí og verður lagt af stað frá félagsheimili Andvara kl. 14. Fákur sér um skipulag og veitingar í ár en eins og í fyrra verður farið ríðandi á Hjallaflatir þar sem við gerum eitthvað skemmtilegt og borðum svo saman áður en riðið er tilbaka. Nú eiga allir hressir krakkar og unglingar að mæta og hitta hópana úr hinum hestamannafélögunum.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim