Úrtaka fyrir Æskan og hesturinn
Jonni og Erla ætla að sjá um að þjálfa atriði fyrir Æskan og hesturinn.
En þar sem vantar ákvarðanir af hálfu sýningarstjórnar um hvernig atriði eldri og yngri knapa skuli vera útfærð þá þarf að fresta úrtökunni (sennilega um viku) - ef einhverjir sjá fram á að vera fjarverandi þá sendið okkur þá línu.
Hvert félag þarf að velja knapa og hesta í 4 atriði:
1. Atriði eldri knapa
2. Atriði yngri knapa
3. Fánareið
4. Grímureið
Í grímureið verður ekki sérstök úrtaka og eru allir yngri en 10 ára velkomnir sem treysta sér til (eða geta fengið pabba eða mömmu til að teyma hestinn sinn) - svo er bara að leggja höfuðið í bleyti og hafa Andvarabúningana eftirtektarverða. Við getum eitthvað haft aðgang að reiðhöllinni um helgar þ.a. stefnt er að því að hafa æfingu fyrir þátttakendur (þarf ekki að mæta í grímubúningnum) helgina fyrir stóru stundina (þ.e. 3. og/eða 4. mars) þ.a. hestarnir séu orðnir vanir að koma inn í reiðhöll og bregði ekki við tónlist og klapp.
Í fánareiðina þarf 3 brúna hesta (verður skoðað um leið og úrtaka verður í atriði)
Mótstjórn setur upp atriði eldri og yngri knapa og eiga Jonni og Erla eftir að mæta á fund með mótsstjórn áður en hægt verður að velja í atriðin

1 Ummæli:
Sæl
Stelpuna mína, sem er átta ára, langar að vera með í grímureiðinni. Hvernig virkar þetta, verða e.h. æfingar hjá þeim eða við hvern ætti ég að tala til að fá nánari upplýsingar?
bkv.
Tryggvi
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim