Pizzakvöldið í gær
Þegar við ætluðum að mæta á pizzakvöld í gær þá var hópur "aldraðra ungmenna" búinn að leggja undir sig félagsheimilið til að læra járningar (geta menn ekki bara fengið sér járningamann??? - pizzuát meira áríðandi). Þar sem unglingar Andvara láta ekki auðveldlega slá sig út af laginu þá lögðum við undir okkur kaffistofu á Dreyravöllum 3, skemmtum okkur við kókosbolluát (með bundið fyrir augun og hendur fyrir aftan bak - smart ekki satt, Magnea er nú ósigraður meistari í kókosbolluáti), svo fórum við í saltstanga-míkadó (þar sem mátti bara borða þær saltstangir sem maður gat náð óhreyfðum) - svo endaði hópurinn á að banka upp á í nokkrum húsum og bjóðast til að syngja fyrir menn (allir með skófar á rassinum eftir það!)
Sem sagt: Hin besta skemmtun - en við vonum að það hafi ekki margir farið fýluferð

2 Ummæli:
Hahahaha !!
Ég er líka best að borða nammi ;)
Skora ykkur í fleiri keppnir :P
Það var líka geðveikslega gaman...
já þetta var fjör ;)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim