Meira Æskan og hesturinn
Er ekki rétt að við förum öll að leggja höfuðið í bleyti um hvað sé hægt að gera fyrri Æskan og hesturinn á næsta ári? Það kom upp sú skemmtilega hugmynd að krakkarnir byggju sjálf til atriði og fullorðnir kæmu sem allra minnst nálægt þessu (nema að sjálfsögðu sem þjónusta á sýningunni sjálfri) - upp með hugmyndaflugið

19 Ummæli:
Það væri hægt að búa til smá leikþátt þar sem vondir kallar ræna fallegu prinsessunni og svo þurfa hugprúðu riddararnir (sem eru meiriháttar valkyrjur) að koma og bjarga henni
Það væri hægt að blása til orrustu þar sem tvö lið berjast með plast-sverðum eða einhverju álíka
-
eða útbúa víkingabúninga
ég var að spá hvort það væri ekki hægt að hafa svona techno lag og allir krakkarnir sem taka þátt mundi vera í keppnisbúning og gera eitthvað flott úr því:D bara hugmynd:D
bara fjörugt lag og búa til eitthvað atriðiúr því
það væri kannski hægt að hafa svona "hundakúnstir" og þá mundu allir koma bara á góðum hestum sem eiga auðvelt með að standa kjurrir eða eitthvað svoleiðis.
Við gætum beðið Kidda Hákonar um að kenna okkur að láta hestana leggjast (eins og hann "lagði" Snata í bíómyndinni "Magnús" á sínum tíma) og kannski einhverjar fleiri hundakúnstir
Hvernig væri að setja upp þrautabraut, allskonar sveigjur og beygjur og hindranir kannski svipað upp sett og smalakeppnin í Ölfushöllinni??
þrautabrautarhugmyndin er mjög góð :D
það er sniðugt að gera svona æfingar. Hindranir og beygjur, líka að láta hestana leggjast
það væri hægt að hafa svona orrustu og fyrst kemur svona ein eða tveir inn og blása í lúðra og fara svo aftur út og síðan koma tvö lið og bara eikkvað solleis :D
afhverju setja allir anonymous?
bara að spurja því það væri kannski gaman að vita hver fær hvaða hugmynd?
hvernig væri að það komi kannski svona 2 inn ú sitthvorum endanum og mætast síðan í miðjunni og blása í lúðra(eða eitthvað annað) og síðan byrjar "stríð" eða eitthvað álíka :D
við gætum líka haft póló á hestbaki.
hvernig væri það? :D
maður vill ekkert láta hlæja að sér ef hugmyndin er asnaleg
maður vill ekkert láta hlæja að sér ef hugmyndin er asnaleg
hver ætti að fara að hlæja að þér þó að hugmyndin sé asnalgeg?
mínar hugmyndir eru allar asnalegar
Mér finnst hugmyndin um svona hundakúnstir rosalega góð, láta hestana leggjast, allskonar beygjur og hindranir. Kannski bara á berbaki:P ????
Allavega styð ég hundakúnsta hugmyndina.. Lang best ;)
Ég styð hundakúnsta hugmyndina líka.. hafa atriðið bara frekar hægt en kannski stökk stundum, því þá er hægt að vera á berbaki ;)
P.s. ekki hárkollur
ég styð hundakúnstahugmyndina.
það er líka sniðugt að gera eitthvað svoleiðis berbakt :D :P
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim