Lýsisleikarnir 1. maí - Æskulýðsdagur Andvara og Lýsis hf.
Lýsisleikarnir verða 1. maí eins og vant er.
Skráning verður á sunnudag kl. 12-13 í félagsheimilinu - skráningargjald 500 kr - um er að ræða lokað mót fyrir krakka í Andvara
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
200 m völlurinn:
Pollaflokkur 1 – minna vanir
Pollaflokkur 2 – meira vanir
300 m völlurinn:
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Mótið hefst kl. 13:00 þriðjudaginn 1. maí
Fyrirkomulag verður eftirfarandi:
Keppt verður á gamla hringvellinum -
- í pollaflokki 1 (minna vanir) verða allir keppendur inni á vellinum í einu og aðstoðarmaður með knapa ef vill (þ.e. teyma má undir), riðnir verða 1 - 2 hringir og allir fá þátttökuverðlaun
- í pollaflokki 2 (meira vanir) verða allir keppendur inni á vellinum í einu (ekki má teyma undir) og riðnir verða 2 hringir á kjörgangi hvers hests, allir fá þátttökuverðlaun
- í öðrum flokkum hefur hver keppandi 2 hringi til að sýna 3 gangtegundir, raðað verður í sæti
Endað verður á grillveislu í reiðhöllinni – okkur vantar því öflugan grillmeistara og grillEinnig vantar starfsmenn fyrir mótið:
Ritara
Þul
Hliðvörð

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim