Frábær þátttaka á námskeiðin
Þátttakan á knapamerkja- og barnanámskeiðin í vetur er næstum því of mikil og er bekkurinn nær fullskipaður - meiningin var að á barnanámskeiðunum yrðu aðeins 5 nemendur í einu en þátttakan var svo góð að annað hvort hefði þurft að vísa einhverjum frá eða hafa 6 nemendur í hverjum hóp - ákveðið var að taka seinni kostinn enda treystir Sigrún sér til að sinna þörfum allra m.v. þann fjölda.
Við erum reyndar með einn "vandamálahóp" - það eru skvísurnar sem eru komnar allt of langt í knapamerkjunum (BLÁTT) - vandamálið felst í því að Sigrún getur ekki kennt nema til kl. 8 á kvöldin þ.a. nú stöndum við frammi fyrir því að þurfa að finna viðbótarkennara með réttindi til að kenna knapamerki á efsta stigi - af þessum sökum getur bláa merkið ekki byrjað á mánudaginn eins og hin námskeiðin.
Í gula knapamerkinu hefur tímum fjölgað frá því sem var og til að hægt verði að komast yfir námsefnið fyrir haustið verður tímum fjölgað í lok febrúar og í mars þ.a. þá verða þær sem eru í gula merkinu að mæta 2svar í viku í stað einu sinni.
Svo er bara að vona að flestir hafi fengið óskir sínar uppfylltar varðandi tímasetningar og að allir hafi gagn og gaman af
Baráttukveðjur,
Kristín

1 Ummæli:
við þarna í rauða knapamerkinu getum ekki mætt kl 16:00.. allar í framhaldskólum nema 2 stelpur og búnar fyrsta lagi kl 4 í skolanu.. ATH þetta...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim