Æskulýður Andvara

Þessi blogsíða er ætluð æskulýðsnefnd Andvara og er stefnan að upplýsa og skemmta fólki með reglulegum pistlum og skoðanaskiptum um það sem er í gangi hjá okkur hverju sinni.

sunnudagur, júlí 10, 2005

Unglingalandsmót UMFÍ

Helgina 29.-31. júlí verður haldið unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal. Keppnisgreinar á mótinu verða:
Frjálsar íþróttir, Glíma, Golf, Skák, Knattspyrna, Körfubolti, Hestaíþróttir, Sund og Hæfileikakeppni. Nánari upplýsingar um mótið á www.ulm.is
Skráning hófst 1. júlí og er til 27. júlí. Öllum sem eru á aldrinum 11-18 ára er frjálst að skrá sig. Munið að þið verðið að skrá ykkur undir nafni sambandsaðila(Andvara).
Keppnisgjald er 4.500 kr fyrir hvern keppanda óháð fjölda greina sem viðkomandi keppir í.

Skrifstofa Unglingalandsmótsins er opin frá 08:00 - 16:00 og er á Austurvegi 15 í Vík í Mýrdal sími 568-2929.