Æskulýður Andvara

Þessi blogsíða er ætluð æskulýðsnefnd Andvara og er stefnan að upplýsa og skemmta fólki með reglulegum pistlum og skoðanaskiptum um það sem er í gangi hjá okkur hverju sinni.

föstudagur, júlí 14, 2006

Ævintýraferðir fyrir krakka

Viljum koma á framfæri þessum skemmtilegu krakkaferðum.
Frá skipuleggjendum:
Tveggja daga hestaferð fyrir vel reiðfæra krakka á aldrinum 10-14 ára, þar sem blandast saman kennsla og skemmtun. Við leiðum hugann að undirbúningi hestaferða fjarri mannabyggðum. Við förum m.a. óhefðbundna slóða, kennum hestum og knöpum að ríða yfir vatn og í misgóðu reiðfæri. Að loknum fyrra degi er grillað og haldin kvöldvaka.

Allar nánari upplýsingar á www.kalfholt.is og hjá Eyrúnu og Steingrími heimasími 487 5176 gsm 892 5176
ejsj@emax.is