Æskulýður Andvara

Þessi blogsíða er ætluð æskulýðsnefnd Andvara og er stefnan að upplýsa og skemmta fólki með reglulegum pistlum og skoðanaskiptum um það sem er í gangi hjá okkur hverju sinni.

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Veitingasalan á meistaramóti Andvara

Æskulýðsnefnd hefur tekið að sér að manna veitingasöluna í ár gegn því að fá pening í sjóðinn okkar. Næsta vetur fáum við til okkar dönsk börn og unglinga í heimsókn en stefnt er að því að fara með þau ásamt Andvarakrökkum í skoðunarferðir ofl. sem allt kostar jú pening.

Við köllum því eftir fólki til að hjálpa okkur að vinna næstu helgi á meistaramótinu í Andvara en það vantar að manna vaktir á föstudag kl. 16-21:30(frá 14 ára), á laugardag frá kl. 18-22(frá 14 ára) og kl. 22-02:30(eldri en 20 ára).

hringið í síma 844-4211 eða 5874721 og skráið ykkur á vakt.

kveðja Æskulýðsnefnd